Vefir · netverslanir · samþættingar

Vefur sem hefur skýrt hlutverk

Veflausnir sem tengja saman markmið, efni og tækni — frá einföldum kynningarvef að netverslun og sérhæfðu stafrænu ferli.

Ræðum verkefnið

Vefurinn á að hjálpa fólki að skilja, velja og framkvæma. Við mótum upplýsingaskipan og notendaflæði áður en tæknin tekur við.

Niðurstaðan

Hraður, aðgengilegur og leitarvænn vefur sem styður reksturinn.

Verkefnið mótað eftir þörfinni.

Við veljum umfang, miðla og samstarfsform út frá því sem þarf að ná fram — ekki fyrirfram ákveðnum pakka.

  • Upplýsingaskipan og notendaflæði
  • Hönnun og textar fyrir vefi
  • WordPress og sérsmíðaðar lausnir
  • Netverslanir og bókunarferli
  • Samþættingar og tæknileg ráðgjöf
Myndræn framsetning á þjónustu AXA

Gott að vita.

Hvernig vinnum við verkefnið?
  1. 01

    Greinum

    Kortleggjum markmið, notendur, efni og tæknilegar forsendur.

  2. 02

    Mótum

    Byggjum veftré, leiðir og sjónrænt kerfi áður en allt efnið er sett upp.

  3. 03

    Byggjum

    Forritum, setjum upp efni og tengjum þau kerfi sem eiga að vinna saman.

  4. 04

    Prófum

    Yfirförum hraða, aðgengi, leitargrunn og lykilleiðir áður en vefurinn fer í loftið.

Hvað getur komið út úr samstarfinu?
Vefgreining og áætlunVeftré og frumgerðirHönnunarkerfiForritun og uppsetningPrófanir og afhending
Byggir AXA aðeins WordPress-vefi?

Nei. Tæknin er valin eftir verkefninu. WordPress hentar mörgum vefjum vel, en sérsmíðuð útfærsla getur verið réttari þegar þarfirnar kalla á hana.

Er SEO hluti af vefsíðugerðinni?

Tæknilegur og efnislegur SEO-grunnur er hluti af góðri vefsmíði. Umfang leitarorðagreiningar og efnisvinnu er síðan skilgreint fyrir hvert verkefni.

Getið þið endurhannað núverandi vef?

Já. Við getum greint það sem er til, varðveitt verðmætt efni og endurbyggt skipulag, hönnun eða tæknilega útfærslu eftir þörfum.