Persónuvernd / síðast uppfært 21. ágúst 2026

Persónuvernd
í skýru máli.

Hér kemur fram hvaða upplýsingar AXA vinnur þegar þú hefur samband, hvers vegna þær eru notaðar og hvaða réttindi þú hefur.

01

Ábyrgðaraðili

AXA ehf. er ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu persónuupplýsinga sem lýst er hér.

axa@axa.is
868 4888

02

Hvaða upplýsingar vinnum við?

Þegar þú hefur samband með tölvupósti eða síma vinnum við þær upplýsingar sem þú lætur okkur í té, svo sem nafn, netfang, símanúmer, upplýsingar um fyrirtæki og efni erindisins. Vefþjónn getur einnig skráð tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölu, tíma beiðni og gerð vafra, vegna öryggis og bilanagreiningar.

03

Tilgangur og heimild

Upplýsingarnar eru notaðar til að svara erindum, meta verkefni, undirbúa tilboð og sinna þjónustu sem óskað er eftir. Vinnslan byggist eftir atvikum á ráðstöfunum að þinni beiðni áður en samningur er gerður og lögmætum hagsmunum AXA ehf. af því að svara erindum, reka örugga þjónustu og halda utan um samskipti.

04

Miðlun og vinnsluaðilar

Við seljum ekki persónuupplýsingar. Hýsingar- og tölvupóstþjónustur geta unnið upplýsingar fyrir okkar hönd að því marki sem þarf til að hýsa vefinn og koma samskiptum til skila. Upplýsingum kann einnig að vera miðlað ef lög krefjast þess.

05

Varðveisla

Erindi sem leiðir ekki til viðskipta er almennt varðveitt í allt að 12 mánuði frá síðustu samskiptum og síðan eytt, nema málefnaleg ástæða eða lagaskylda krefjist annars. Ef til viðskipta kemur geta samskipti og gögn verið varðveitt lengur samkvæmt samningi og gildandi lagaskyldum. Tæknileg logg eru varðveitt aðeins eins lengi og nauðsynlegt er vegna öryggis og bilanagreiningar.

06

Vafrakökur og mælingar

AXA.is notar ekki greiningar- eða markaðskökur í núverandi uppsetningu og birtir hvorki auglýsingar né framkvæmir persónusnið. Ef slík virkni verður tekin upp síðar verður þessi stefna uppfærð og samþykkis aflað þegar þess er krafist.

07

Þín réttindi

Þú getur óskað eftir aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu og andmælt vinnslu þegar það á við. Réttur til flutnings gagna getur einnig átt við. Sendu erindi á axa@axa.is. Þú átt jafnframt rétt á að senda kvörtun til Persónuverndar.

08

Öryggi og breytingar

Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að vernda upplýsingar gegn óheimilum aðgangi, breytingu eða tapi. Stefnan kann að breytast ef þjónustan eða lagakröfur breytast. Nýjasta útgáfa er ávallt birt á þessari síðu.